Skuggi Hótel er staðsett á Hverfisgötunni í hjarta Reykjavíkur, aðeins steinsnar frá Laugaveginum og mörgum spennandi veitingastöðum og verslunum sem liggja í hliðargötum þar hjá.
Á Skuggi Hótel eru 100 rúmgóð og björt herbergi, en líkt og hótelið sjálft þá eru herbergin stílhrein í hönnun og smekklega innréttuð. Innblástur fyrir hönnunina var sóttur í ljósmyndir Ragnars Axelssonar og skapar samblanda íslenskrar náttúru og borgarsjarma grófa en notalega stemningu. Inni á hverju herbergi má finna tilvitnanir yfir höfuðgafli úr bókinni Fjallaland, en hana prýða myndir eftir Ragnar. Ensk útgáfa bókarinnar er á öllum herbergjum og geta gestir gluggað í hana á meðan dvöl stendur. Á jarðhæð hótelsins er bar og lounge.
Aðstaða á hótelinu
MorgunverðurMorgunverður er borin fram á sömu hæð og móttakan er á milli klukkan 07:00 - 10:00 alla daga.
Hótelbar
Barinn er staðsettur á jarðhæð og er opinn alla daga frá klukkan 12:00-23:00.
Internet
Gestir hafa aðgang að gjaldfrjálsri internet tengingu í öllum rýmum hótelsins. Vinsamlegast nálgist aðgangsorð í móttöku til að fá aðgang.
BílastæðiGjaldfrjáls bílastæði eru fyrir aftan hótelið auk þess sem gestir geta lagt bílum sínum í bílakjallara hótelsins.
Þjónusta- Móttaka opin 24/7
- Gjaldmiðlaskipti
- Bókunarþjónusta
- Töskugeymsla
- Fatahreinsun í boði alla virka daga
- Fax og ljósritunarþjónusta
- Póstkassi
- Gestir hafa gjaldfrjálsan aðgang að gestatölvum í gestamóttöku
- Öryggishólf er í gestamóttöku
Almennar upplýsingar- Reyklaust hótel
- Reykskynjarar í öllum rýmum
- Myrkratjöld í herbergjum
- Aðgengi fyrir fatlaða
- Lyfta
Innritun og útskráning
- Innritun er frá 15:00
- Útskráning er til 12:00 (hádegi)
Gisting fyrir börnin
Við bjóðum öll börn velkomin á hótelið. Börn undir 12 ára gista frítt ef þau deila rúmi með foreldrum, að hámarki eitt barn í hverju herbergi.
Ungbarnarúm (0-3 ára) eru ókeypis og eru háð framboði. Vinsamlegast hafið samband við hótelið til að bæta ungbarnarúmi við bókunina þína.
Greiðslukort
Hótelið áskilur sér rétt til að taka frá heimild á greiðslukorti gests, áður en dvölin hefst.
Kynningarmyndband Skuggi Hótel
Hafðu samband
Skuggi HótelHverfisgata 103
101, Reykjavík
Ísland
Sími:
590-7000Fax:
590-7020www.keahotels.is skuggi@keahotels.is